17.9.2007 | 14:06
Aftur farið að snjóa.....
Er ennþá stödd í sumarbústað og það er aftur farið að snjóa.Valgerður mín kom til mömslunnar sinnar í gær og var í nótt og ætlar að vera aðra. Vorum komnar í pottinn um kl.10 00 í morgun eftir að hafa borðað "hollan" molgunmat, ég segi molgunmat af því að þegar hún var lítil var hún svo mikil matmanneskja og er reyndar ennþá en oftast áður en hún fór að sofa á kvöldin spurði hún mig "mamma hvað velður í molgunmat á molgun" átti svolítið lengi erfitt með s og r þessi elska en allt komið í lag núna, enda orðin 24 ára. En núna ætlum við að hafa það ógó kósý í dag glápa á video og háma í okkur nammi uss ekki segja svo að fara aftur og aftur í pottinn þegar okkur listir ekki leiðinlegur mánudagur þetta.
Hafið allir sem lesið þetta góðan mánudag
Um bloggið
Sigríður B Sigurðardóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jahérna hér..... það er bara lúxus á ykkur!!! og þið bara blaðrið þessu á netið án þess að roðna né blikkna Svo sit ég bara hérna í kuldanum á norðurlandi og hef ekki einusinni bað til að fara í!!! hehehehe
Baaaaara grínast, vonandi njótiði þess bara í botn að liggja í heitapottinum og glápa á video í sumó Passiði bara að kafna ekki úr hlátri í húmornum sem hefur heyrst alla leið hingað á Akureyrish hahahaha....... þið eruð bestar
p.s. Sóley er langt komin með að vera löguð!!
Elsta dóttirin sem er klárlega skilin útundan ;) (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 21:32
gunna (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 18:33
Bank, bank, er bara að athuga hvort þið eruð enn í pottinum?
Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 23:59
Nú jæja, greinilega farnar.....
Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 17:59
Mammaaaa.....
farðu nú að blogga kona :)
love you :*
sú elsta... (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 02:30
Rannveig mín, þú hefðir verið svo ynnilega velkomin
Ásgerður mín, þú veist að ég var á námskeiði hjá Stígamótum um helgina og tölvan heima
Sigríður B Sigurðardóttir, 24.9.2007 kl. 10:28
Takk, kem að ári liðnu
Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.