Afmælisdagur að kvöldi kominn...

Jú eins og ég sagði í færslunni minni í gær á ég afmæli í dagWizard það eru liðin 4 ár upp á dag þegar ég fyrst leitaði mér hjálpar í StígamótumSmile. Í dag varði ég deginum ein í sumarbústað því vegna ófærðar komust þeir ekki til mín sem ætluðu að komaErrm. En engu og síður átti ég góðan dag,fékk fullt af hamingjuóskum í gegnum síma, held ég hafi talað í síma í alls 2 tíma í dagInLovevið fólk sem þykir vænt um mig, hafði kveikt á 4 kertum í allan dag og reyndar ennþá OG horfði á myndina "The Color Purple" sá þessa mynd í fyrsta skipti 1986 held ég, og þá með "systrum og vinkonum" hef síðan horft á hana næstum því 10.sinnum síðan og alltaf græt ég jafn mikið yfir henni. En það sem mér finnst alltaf standa uppúr þessari mynd er annarsvegar  þessi ynnilegi kærleikur milli systrana Celie og Nettie sem varir að eilífu, sama hvað gengur á og hinsvegar vináttan milli Celie og Shug Avery sem líka varir alltaf.Heart

Vona að þið sem lesið þetta hafið haft eins góðan dag og ég.HeartHeartHeart        


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svandís Rós

Innilega til hamingju með daginn. Það er alltaf gott þegar maður tekur skref í rétta átt og léttir af sér þeirri byrði sem maður á ekki að þurfa bera.

Þú ert yndisleg kona Sirrý mín og ég efast ekki um að þessi dagur hafi verið einn af þeim mikilvægustu í þínu lífi

Kveðja,

fyrrverandi tengdadóttir. 

Svandís Rós, 15.9.2007 kl. 23:10

2 identicon

Óska þér til hamingju með daginn í gær   gott að þú áttir góðan dag þrátt fyrir ófærðina og gestaleysið.  Á svona stundum verð ég svo þakklát Guði fyrir þá sem fundu upp símann .  Fjögur ár, stefnan tekin upp á við.......  Þú ert alveg frábær, kona sem þorir að standa fyrir sínu og standa með sjálfri sér, haltu því áfram. 

Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 08:17

3 Smámynd: Sigríður B Sigurðardóttir

Takk elskurnar fyrir fallegar kveðjur

Sigríður B Sigurðardóttir, 17.9.2007 kl. 14:08

4 identicon

VÁÁ spáðu í því mamma..... 4 ár!!!

TIL HAMINGJU  Þú ert bestust og flottust og STERKUST

Elsta dóttirin (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 21:24

5 identicon

ekki amalegt að fá svona kveðju "bestust, flottust og sterkust"  skondrumamma - þú átt góð börn - enda bara nokkuð góð sjálf  - lufja

Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 01:07

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Elsku Sirrý til hamingju með tímamótin. Ég missti af þessu, hef ekki gefið mér neinn tíma til að lesa blogg undanfarið. Haltu ótrauð áfram á þeirri braut sem þú ert á.

Jóna Á. Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigríður B Sigurðardóttir

Höfundur

Sigríður B Sigurðardóttir
Sigríður B Sigurðardóttir
Ég er mamma 5 barna, eiginkona, amma 9 barna og langamma1.barns,er líka Stígamótakona.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 369

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband